|
Neyðarnúmer barnaverndar er 112
Vilt þú vinna skemmtilegt og gefandi starf, við hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga leitum að einstaklingum í liðveisu ef þú hefur áhuga þá veitir starfsfólk fssf upplýsingar í síma 430-7800 eða þú getur sent tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga (fssf) starfar á ábyrgð Félagsmálanefndar Snæfellinga í umboði bæjarstjórnanna á Snæfellsnesi samkvæmt sérstökum samningi .
Skipulagning og framkvæmd þjónustunnar er í höndum starfsfólks fssf. Áhersla er lögð á náið og gott samstarf við alla aðila s.s. heilsugæslu, löggæslu, þeirra sem sinna fræðslumálum og íbúana sjálfa sem eiga rétt á að leita aðstoðar hjá starfsfólki fssf. Fólk er hvatt til að leita ráðgjafar og aðstoðar áður en vandinn er orðinn yfirþyrmandi og jafnframt að kynna sér lög og reglugerðir hér á heimasíðunni. Hægt er að hafa samband við Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga með því að senda tölvupóst á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringja í síma 430 7800 og eða koma á skrifstofu fssf að Klettsbúð 4 Hellissandi. Fax-númer Félags- og skólaþjónustunnar er 430-7801. Skrifstofan er opin er alla virka daga frá kl 10:00-15:30
Viðvera ráðgjafa á bæjarskrifstofu Grundarfjarðarbæjar er miðvikudaga kl. 10:00-15:00
Viðvera ráðgjafa í Ráðhúsinu Stykkishólmi er þriðjudaga kl. 10:00-15:00 Best er að hringja á skrifstofu fssf og panta tíma í samráði við ráðgjafa. Þó er velkomið að koma við á auglýstum viðverustað. Starfsfólk er bundið trúnaði um málefni þeirra sem til hennar leita. Markmið félagsþjónustu sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar. Við framkvæmd þjónustunnar er það haft að leiðarljósi að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, styrkja hann til sjálfshjálpar og virða sjálfsákvörðunarrétt hans. Þjónusta við leik- og grunnskóla fellst í sérfræðiþjónustu eins og sérkennslu- og námsráðgjöf, þjónustu sál- og talmeinafræðinga auk forvarnafræðslu og ráðgjöf. Stofnsamningur fssf Erindisbréf Félagsnefndar Snæfellinga Stefna og framkvæmdaáætlun barnaverndarnefndar Snæfellinga 2006 - 2010 |